Um Vefverslun Ölgerðarinnar

Velkomin/n í vefverslun Ölgerðarinnar og njóttu þess að versla á síðu sem er sérsniðin að þínum þörfum. Smelltu hérna til að horfa á myndbandskynningu vefverslunarinnar.

 

Hérna getur þú:

• Skoðað með einföldum hætti allt vöruúrval Ölgerðarinnar
• Pantað vörur þegar þér hentar fljótt og örugglega
• Skoðað þínar upplýsingar, reikninga og fleira undir Mínar síður.

Hverjir geta pantað á vefversluninni?

Allir sem standa í rekstri af einhverju tagi og hafa virðisaukanúmer eða fyrirtækiskennitölu.

 

Hvers vegna ættir þú að versla við Ölgerðina?

Jú vegna þess að Ölgerðin leggur sig fram við að bjóða einungis upp á úrvalsvöru í miklu úrvali á hagstæðu verði, örugga afhendingu á réttum tíma og ekki síst þægindin fyrir þig að geta afgreitt þig sjálfur í vefversluninni. Sparaðu tíma og fyrirhöfn og pantaðu vörurnar fyrir þína starfsemi hér.

 

Hvernig ber ég mig að?

Það eina sem þú þarft að gera er að smella hérna og þú ert leidd/ur í gegnum skráningarferlið. Ef þú ert þegar notandi þá geturðu skráð þig inn hérna

 

Ef þú lendir í vandræðum eða þarft að spyrja einhvers þá er þér velkomið að hafa samband á vefverslun@olgerdin.is eða í síma 412-8100 milli 8-16.

Spurt & svarað

Hver er lágmarksupphæð á pantanir hjá Ölgerðinni?

Lágmarksupphæð er 25.000 kr. hvort sem viðskiptavinur velur að sækja pöntunina eða fær hana senda til sín. Þó er hægt að panta undir þessari upphæð að viðbættu 7.000 kr. þjónustugjaldi.

Er Ölgerðin með einhverja stefnu í persónuverndarmálum?

Okkur er umhugað um öryggi persónuupplýsinga þinna. Persónuverndarstefna viðskiptavina Ölgerðarinnar er að finna hér: https://www.olgerdin.is/stefnur. Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér hana.

Hvaða upplýsingar geymið þið um notendur?

Vefverslun Ölgerðarinnar notar vafrakökur til að tryggja sem bestu upplifun fyrir notendur. Greiningarvafrakökur eru notaðar til að skoða hvernig viðskiptavinir okkar nota vefverslunina og eru þau gögn notuð til að bæta vefverslunina og þína upplifun. Notandi getur sleppt notkun á Google Analytics með því að nota þetta verkfæri: https://tools.google.com/dlpage/gaoptout.

Mig langar ekki að fá send fréttabréf né tilboð, get ég skráð mig af póstlistanum ykkar?

Við virðum óskir viðskiptavina okkar. Óskir þú eftir að fá slík fréttabréf ekki send getur þú afþakkað þau með því að afskrá netfangið hitt hérna.

Hvert á maður að sækja pantanir?

Ef þú velur að sækja pöntunina þína geturðu nálgast hana á settum degi í vöruafgreiðslu Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 7-11 (inngangur snýr að Mjólkursamsölunni).

Hvaða verð sé ég í vefversluninni?

Öll þau verð sem þú sérð í vefversluninni eru þín verð með afslætti, gjöldum og virðisauka.

Hverjir geta verslað gegnum vefverslun Ölgerðarinnar?

Allir viðskiptavinir Ölgerðarinnar, sem hafa virðisaukanúmer og standa í rekstri af einhverju tagi, geta keypt í gegnum vefverslunina.

Hvernig panta ég gegnum vefverslunina?

Við höfum unnið að því að hafa verslunina eins einfalda í notkun og mögulegt. Hægt er að skoða vöruúrvalið út frá tenglum á forsíðunni og hægt er að bæta vöru í körfu hvar sem þú finnur hana. Fyrir endurtekin kaup mælum við með að nota Mínar vörur en þar getur viðskiptavinur skoðað vörur sem hefur verið verslað síðastliðna 6 mánuði, hversu mikið hefur verið keypt og hægt að setja beint í körfuna.

Get ég greitt með korti á vefnum?

Já, hægt að greiða með kreditkorti á vefversluninni :)

Af hverju sé ég engin verð í vefversluninni?

Þú þarft að vera innskráður notandi til að sjá öll verð.

Get ég breytt pöntun?

Svo lengi sem þú ert ekki búinn að ganga frá pöntuninni þá geturðu bætt í og fjarlægt úr körfunni eins oft og lengi sem þú vilt. Ef þú ert búinn að ganga frá pöntun þá þarftu að hafa samband við Þjónustuver Ölgerðarinnar s. 412-8100 eða senda póst á vefverslun@olgerdin.is og við hjálpum þér að breyta pöntun.

Hvaða kaffi keypti ég þarna um daginn?

Ef þú smellir á Mínar síður geturðu séð alla þína reikninga undir Reikningar. Ef þú vilt flétta upp á stakri vöru þá geturðu smellt á Mínar vörur og séð seinustu 6 pantanir sundurliðað á vöru.

Get ég keypt áfengi?

Ef þú ert með skráð áfengisleyfi þá er það ekkert mál. Ef ekki þá muntu ekki geta bætt áfengi í körfuna þína.

Hvernig klára ég pöntun?

Efst á vefversluninni geturðu séð upplýsingar um körfuna þína og fjölda vara. Þegar þú vilt ganga frá pöntun smellirðu á körfuna og ,,Ganga frá pöntun'' þar sem taka við fjögur skref sem leiða þig áfram.