Í vefverslun Ölgerðarinnar getur þú:
• Skoðað með einföldum hætti allt vöruúrval Ölgerðarinnar
• Pantað vörur þegar þér hentar fljótt og örugglega
• Skoðað þínar upplýsingar, reikninga og fleira undir Mínar síður.
Öll fyrirtæki sem hafa virðisaukanúmer eða fyrirtækiskennitölu.
Hvers vegna ættir þú að versla við Ölgerðina?
Ölgerðin leggur áherslu á að bjóða aðeins úrvalsvörur í miklu úrvali, á hagstæðu verði, örugga afhendingu á réttum tíma. Sparaðu tíma og fyrirhöfn og pantaðu vörurnar í vefverslun.
Hvernig ber ég mig að?
Það eina sem þú þarft að gera er að smella hérna og þú ert leidd/ur í gegnum skráningarferlið.
Ef þú ert þegar notandi þá geturðu skráð þig inn hérna með rafrænum skilríkum eða með netfangi.
Ef þú lendir í vandræðum eða þarft að spyrja einhvers þá er þér velkomið að hafa samband á vefverslun@olgerdin.is eða í síma 412-8100 milli 8-16.
Lágmarksupphæð er 25.000 kr. hvort sem viðskiptavinur velur að sækja pöntunina eða fær hana senda til sín. Þó er hægt að panta undir þessari upphæð að viðbættu 7.000 kr. þjónustugjaldi.
Er hægt að fá heimsent?
Já Ölgerðin sendir vörur til fyrirtækja en það er ekki hægt að fá sent í heimahús.
Hvert á maður að sækja pantanir?
Ef þú velur að sækja pöntunina þína geturðu nálgast hana á settum degi í vöruafgreiðslu Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 7-11 (inngangur snýr að Mjólkursamsölunni).
Hvaða verð sé ég í vefversluninni?
Þín verð með afslætti, gjöldum og virðisauka.
Af hverju sé ég engin verð í vefversluninni?
Þú þarft að vera innskráður til að sjá öll verð.
Hverjir geta verslað gegnum vefverslun Ölgerðarinnar?
Allir viðskiptavinir Ölgerðarinnar sem hafa virðisaukanúmer og fyrirtækjakennitölu.
Hvernig kemst ég í viðskipti við Ölgerðina?
Nýr notandi verður fyrst að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Síðan er hægt að tengjast fyrirtæki sem er þegar í viðskiptum eða stofna nýtt fyrirtæki sem er ekki í viðskiptum.
Get ég greitt með korti á vefnum?
Já, hægt að greiða með kreditkorti á vefversluninni :)
Hvernig panta ég gegnum vefverslunina?
Hægt er að skoða vöruúrvalið út frá tenglum á forsíðunni og hægt er að bæta vöru í körfu hvar sem þú finnur hana. Fyrir endurtekin kaup mælum við með að nota Vörulistar undir Mínar síður en þar getur viðskiptavinur skoðað vörur sem hann hefur verið verslað síðastliðna 6 mánuði, hversu mikið hefur verið keypt og hægt að setja beint í körfuna. Einnig er hægt að búa til sína eigin vörulista og deila þeim með öðrum innan fyrirtækisins.
Get ég breytt pöntun?
Svo lengi sem þú ert ekki búinn að ganga frá pöntuninni þá getur þú bætt í og fjarlægt úr körfunni eins oft og lengi sem þú vilt. Ef þú ert búinn að ganga frá pöntun þá þarftu að hafa samband við Þjónustuver Ölgerðarinnar s. 412-8100 eða senda póst á vefverslun@olgerdin.is og við hjálpum þér að breyta pöntun.
Hvernig klára ég pöntun?
Efst á vefversluninni getur þú séð upplýsingar um körfuna þína og fjölda vara. Þegar þú vilt ganga frá pöntun smellirðu á körfuna og ,,Ganga frá pöntun'' þar sem taka við fjögur skref sem leiða þig áfram.
Hvaða kaffi keypti ég þarna um daginn?
Ef þú smellir á Mínar síður geturðu séð alla þína reikninga undir Bókhald. Ef þú vilt flétta upp á stakri vöru þá geturðu smellt á Vörulistar og séð seinustu 6 pantanir sundurliðað á vöru.
Er Ölgerðin með einhverja stefnu í persónuverndarmálum?
Okkur er umhugað um öryggi persónuupplýsinga þinna. Persónuverndarstefna viðskiptavina Ölgerðarinnar er að finna hér undir Persónuverndarstefna: Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér hana.
Hvaða upplýsingar geymið þið um notendur?
Vefsíða Ölgerðarinnar notar vafrakökur (e. cookies) til að tryggja sem bestu upplifun af síðunni fyrir notendur. Stefnu þessari er ætlað að upplýsa notendur um það hvað vafrakaka er, hvernig félagið notar vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað notkun á vafrakökum. Sjá nánar hér um Vafrakökustefnu Ölgerðarinnar.
Mig langar ekki að fá send fréttabréf né tilboð, get ég skráð mig af póstlistanum ykkar?
Við virðum óskir viðskiptavina okkar. Óskir þú eftir að fá slík fréttabréf ekki send getur þú afþakkað þau með því að afskrá netfangið hitt hérna.